6.5.2010 | 10:15
Löng helgi
Halló,
Ég er virkilega að reyna að standa mig í því að blogga hérna, fæ mig bara stundum ekki í það!
Það var löng helgi um seinustu helgi, bretarnir eru nefninlega svo sniðugir, allir frídagar fara á mánudag og eru bara kallaðir Bank Holiday, þannig að þegar að 1. maí lendir á laugardegi eins og núna, þá bara skiptir það ekki máli! Very nice I must say. Við Andrea fórum i myndatöku á laugardaginn hjá stofu sem heitir The Face London. Ofsalega flottar myndir finnst mér, hefðum getað valið úr svona 100 myndum, en fengum bara takmarkað frítt og þessi stofa er rosalega dýr og flott svo það var ekkert grín að kaupa fleiri myndir. Vil nota tækifærið og þakka fólki fyrir frábær komment á þessar myndir sem ég setti inn á facebook, þið eruð öll yndisleg! Við fengum þarna make up, hárgreiðslu, mini handsnyrtingu, kampavín og allt, mætti segja að þetta hafi verið langþráður dekurdagur hjá okkur báðurm ekkert smá gaman! Því miður þá glataðist nafnið á ljósmyndaranum, en hann var Ítalskur rosalega klár gæi, hann bauð mér aukavinnu hjá sér sem aðstoðarmaður ljósmyndara! Snillingur, gæti verið að fara með honum í einhverja svaka myndatöku á sunnudaginn en þar sem ég týndi nafninu hans þá held ég að það verði ekkert úr því, átti að adda honum á facebook, haha alveg týbískt ég bara.
Við ætluðum svo að kíkja út um kvöldið og hitta Scott vin okkar, sem var að fara á einhvern skemmtistað á London Bridge, mætti segja að þessi staður hafi verið svolítið "öðruvísi", ég allavega er ekki að leita af fólki með gjörninga og draugum á laugardagskvöldum þegar ég ætla að skemmta mér! Við vorum líka frekar fljót að yfirgefa svæðið eftir einn drykk, og við Andrea fórum bara heim að kúra klukkan 11 !
Á sunnudaginn fór ég svo Ingu frænku, þegar ég loksins hafi mig í það að fara út í rigninguna og kuldann (Ekkert grín þegar hitinn lækkar um 10° á nokkrum dögum!). Við Inga kíktum á svona open mic kvöld á pub rétt hjá henni, mér finnst það alltaf jafn gaman! Allskonar fólk og allskonar tónlist. Á mánudaginn fórum við svo á svona farmers sýningu, það var alveg ótrúlega fyndið og skemmtilegt! Sá fyrst breska hesta almennilega, mér finnst þeir bara eins og skrímsli þeir eru svo stórir! Held ég myndi ekki þora á bak! svo voru þarna dansandi kindur og fleira ótrúlega fyndið. Gaman að sjá þetta. Við fórum svo til Reading til Möggu frænku og Cucho. Mjög gaman að koma til þeirra og hitta þau loksins, fékk alveg frábæran mat og skemmtilegar umræður. Frábær Wiium frænku dagur :)
Annars er veðrið eins og ég segi ekkert búið að vera neitt spes seinustu daga, miðað við það að fyrir 2 vikum voru 23°C og sól í marga marga daga. Núna er búið að vera kalt, rigning, ský og bara ekkert skemmtilegt. Sem þyðir auðvitað það að ég fékk kvef og er núna bara að kafna og er bara búin að vera inni síðan á þriðjudaginn, rétt skrepp með börnin í skólann og næ í þau, ætla að reyna að ná þessu úr mér fyrir helgina, ætla að vera túristi um helgina og sjá eitthvað skemmtilegt.
Það er nefninlega svo ótrúlega stutt eftir! Eftir 2 vikur kemur Elín, sem er að taka við af mér, og þá er ég svona nokkurnvegin hætt að vinna! Verð með henni í smá tíma en verð annars bara í nokkra daga að leika mér áður en ég fer, reyna að klára að sjá allt sem ég vil sjá áður en ég fer heim, versla og bara njóta þess að vera með fólkinu mínu hér, því jesús hvað ég á eftir að sakna allra!
Ég er komin með flugmiða heim 26. maí. Sem er miðvikudagur, fer svo heim á Vopnó á föstudegi og svo norður helgina eftir það. Allt mjög planað! Reyna að gera sem mest í júní áður en ég fer að vinna eins og brjálæðingur:)
Ég er líka komin með miða til Eyja um versló! Ég get ekki beðið sko, mig vantar bara gistingu! Svo ef einhver veit um hús/íbúð/herbergi/kofa handa mér og bara orfáum sætum stelpum þá endilega látið mig vita!
MAMMA ER AÐ KOMA EFTIR VIKU! Það er svo eins gott að þetta eldfjall og veðurguðirnir verði með stúlkunum í Brekkubæ þegar þær leggja í hann! Því þó það sé stutt í að ég fari heim þá get ég bara ekki beðið eftir að fá mömmu hingað og sýna henni allt og þið vitið, bara hitta mömmu mína! Sakna hennar alveg ótrúlega mikið.
Ég ætla bara að horfa á gossip girl og reyna að láta daginn líða!
Bæjó!
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
27.4.2010 | 21:03
"Hún?? hún er ekkert sérstök á Íslandi!"
Já það er svo sannalega ekki öfundsvert að vera Íslendingur í dag. Gengur ekkert upp. Ég er komin með þokkalegt ógeð á þessu eldgosi, þó að ég þurfi ekki sjálf að fljúga neitt strax þá þurfa aðrir sem ég þekki að gera það og þetta er bara ekkert fjör. Eins gott að þetta verði komið í lag þegar mamma kemur eftir 2 vikur, og þegar ég fer heim takk! Annars er fólk nú ekkert að pína mann með þessu, flestir stríða manni bara og spurja svo hvort það sé ekki í lagi með fólkið mitt heima (Fyrst héldu allir að það væru bara allir steindauðir þarna heima). Einstaka fólk hinsvegar er með leiðindi, dyraverðir sem neita að hleypa manni inn á skemmtistaði nema maður stoppi eldgosið og álíka, þura allmighty bara mætt til að stoppa eldgosið. Vorum úti að borða um daginn og heyrðum bara endalaust á borðinu fyrir aftan okkur "I hate Iceland I hate Iceland", Hulda mín fékk nú bara alveg nóg og fór og ræddi við þessa ágætu pilta, þeir fóru alveg í kleinu en náðu að punga því útúr sér að þeir væru að tala um myndbandið á netinu. (Af stráknum sem öskrar þetta á flugvellinum í Skotlandi), frekar fyndið samt.
Væri alveg til í losna við þetta eldgos og fara að einbeita mér að Icesafe aftur ;)

Ég er farin að blogga hérna á 2 vikna fresti, enda er allt hérna orðið svona frekar eðlilegt fyrir mér, ekki eins spennandi og fyrst, en samt yndislegt ekki misskilja mig!!
Um þarseinustu helgi var rosa gott veður og við vorum aðallega bara í því að liggja í Green Park og Finsbury Park að tana, hittumst nokkrar au pair stelpur og kíktum út að borða og á smá djamm. Gaman að hitta stelpurnar, alltaf gaman! Verst hvað það eru margar sem búa langt frá downtown London, maður hittir ekkert fólk nema um helgar! Virku dagarnir eru að verða hálf þreytandi, hehe. Þó það sé 21°C, blanka logn og sól eins og í dag, þá vantar einhvern til að njóta þess með! Andrea er ekki svo langt í burtu, en samt það langt að ég þyrfti að eyða klukkutíma í lest í þessu veðri, og þvi nenni ég alls ekki fyrir kannski 2 tíma félagsskap... fínt þegar við getum hisst á miðri leið, en það er bara þegar sumir eiga pening ;-).
Sé pínu eftir því að hafa ekki dryfið
mig í enskuskólann bara í apríl, en ég er nokkuð viss um að ef ég hefði gert það þá sæi ég eftir því líka. Það er svosum ekkert að því að fara 2x í göngutúr og liggja í sólbaði í southwark park á daginn, og leika sér svo á róló með krökkunum þegar þau eru búin í skólanum;-)
Er bara frekar blönk þessa dagana og geri því ekki mikið þegar helgin er búin, klárast alltaf allt á sunnudegi, hehee. Svo er frí á mánudaginn svo það verður ennþá meira spreðað. Er að fara í smá mission með Andreu á laugardaginn, segi frá því í næsta bloggi, ætla ekkert að segja fyrr en það er búið, en það verður mjög spennandi að sjá hvernig það fer ;-).
Langar svo rosalega mikið að kíkja til Liverpool á sunnudaginn (Liverpool - Chelsea!!) og til Sonju í Manchester.. en þar sem ég er mjög blönk þá er ég aðeins að hugsa þetta, kostar alveg 60 pund (12.000 kr), í lestina, og svo er rútuferðin næstum 5 tímar!! haha veit ekki hvort ég nenni því fyrir 2 daga.. en ég er enn að sjá til, gæti farið helgina eftir líka, en þá er ekki Liverpool - Chelsea ;) Við Andrea erum svo að spá í að skella okkur niður til Brighton á ströndinna einn góðann veður dag, verður að vera sól og heitt, annars er það ekkert spennandi!
Berglind sys kom um helgina. Þvílík og önnur eins heppni verð ég að segja ! Eini dagurinn sem flugið var eðlilegt var á fimmtudaginn og þá átti hún flug :) Það var bara BEST að fá hana, get ekki lýst því öðruvísi. Var farin að þrá heimsókn frá fjölskyldunni og þetta bjargaði því alveg. Við skemmtum okkur ekkert smá vel, ég allavega náði að færa hana úr húsmóðurgírnum yfir í Soho og Oxford Street gírinn á no time. Náðum að versla alveg helling og djamma meira en við ætluðum líka. Komum seint heim tvö kvöld í röð og sváfum þar af leiðandi lengur en við ætluðum, Berglind sá London allavega vel í myrkri ;) sem var bara gaman! Kynntumst skemmtilegu fólki og það var MIKIÐ hlegið og mikið gaman :) Hlakka til að eyða mörgum vikum í fríi með bestu sys og stelpunum hennar /mínum í sumar :) Takk fyrir komuna elsku besta, sakna þín strax.
Komst að því um helgina að ég er komin með örlítið ógeð á væmninni í þessum bretum. Það er alltaf verið að stoppa mann útá götu, strákarnir hérna fara án gríns á hnén og allt úti á miðri götu, haha þeir eru svo ástfangnir af ljósu hári og bláum augum. Það er alltaf verið að blístra á mann og kalla á mann og þetta getur verið alveg óþolandi. Það var samt eiginlega ekki fyrr en ég hitti íslenska stráka um helgina sem ég mundi almennilega hvernig munurinn er. og guð góður hvað það er miklu skemmtilegra að vera með íslenskum strákum sem segja bara nákvæmlega það sem þeir eru að hugsa, ekkert endalaust "oh þú ert svo falleg", meira svona "Það myndi svo ekkert drepa ykkur að setja á ykkur smá augnskugga í kvöld" og "Hún?? hún er EKKERT sérstök á Íslandi" hahahaha. Ég er svo ekki þessi væmna týpa, nema kannski þegar þetta er kæró eða eitthvað þannig þá er það annað, væri ekkert til í að Kristó væri alltaf að drulla yfir mig sko, haha.

Ég veit hreinlega ekki hvað ligtin hérna á heimilinu er að reyna að ljúga að mér. Ég hef bara aldrei séð þessa tölu áður, fer að nálgast 3 stafa töluna ;) okey nei kannski ekki, EN. Ég hef held ég aldrei verið með svona "mikla" vöðva áður! haha sem gera það að verkum að ég bara þyngist og þyngist, ótrúlega pirrandi að horfa á þetta (Já það er alveg satt hjá ykkur ég ætti kannski að hætta að stíga á vigtina), því að fötin mín eru sko frekar stærri á mér núna en þau voru þegar ég kom, er held ég ekki mikið að fitna. Er reyndar búin að vera í SUKKINU seinustu 2 vikur. Seinasta vika var ógeð, 2x súkkulaði kaka og ég veit ekki hvað, og svo batnaði það ekkert þegar Berglind kom með nóa kropp, nóa kúlur, lakkrís og voga ídýfu. Gæti t.d. líklega lifað á nóa kropp og nóa kúlum einum. En það sem ég er að reyna að segja er, ég er ekkert í ræktinni hérna, fór fyrstu vikurnar en ég bara get ekki farið þegar það er svona heitt, þetta er frekar sveitt rækt og eg bara get ekki hugsað mér að vera þarna inni, fæ líka bara nánast astmakast og geri bara ekki neitt, því ég get það ekki. Ég er bara búin að vera að fara út að hlaupa (En svo fékk ég beinhimnubólgu og er enn að jafna mig), í göngutúra og svo eru það bara þessir litlu ómerkilegu hlutir sem eru algjörlega málið. LABBA upp rúllustigana, taka 2 tröppur í einu í stigunum heima, hlaupa niður aftur og labba upp (Já ég geri það í alvöru), lyfta innkaupapokunum á leiðinni heim úr búðinni, og já að sjálfsögðu að labba í búðina, og bara yfir höfuð að labba útum allt, virkilega nenna að halda á börnunum allann daginn því það styrkir vöðvana. haha þetta hljómar eins og geðveiki, en ég er virkilega búin að vera að spá í þessu.. alltaf þegar maður hugsar "vá hvað ég nenni ekki að standa upp og gera þetta" eða halda á þessu eða what ever, hugsa bara hvað allir svona smá hlutir geta gert fyrir mann! Ég er kannski bara rugluð...
Annars eru bara 3 og hálf vika líklega í að ég hætti að vinna hér, verð örugglega svo í nokkra daga að leika mér áður en ég kem heim. Klára að versla og reyna að skreppa eitthvað útúr bænum og hitta fólk. Verður svo skrítið að flytja út frá fjölskyldunni og fara heim!! Þau eru of yndisleg, ég er svo rosalega rosalega heppin með fjölskyldu, held að það muni öllu þegar maður fer sem au pair, þekki svosum ekki annað. Hlakka samt til að koma heim, neita því ekki, enda nóg að gerast þar þegar ég kem. Jiminn eini samt hvað ég á eftir að sakna allra og alls hér. Væri sérstaklega mikið til
í að taka með mér heim; Veðrið, Starbucks, Waitrose, oxford street, mjög marga veitingastaði, milljón manns og já.... allt bara? allt nema brauðið. Get ekki beðið eftir að fá nýbakað brauð frá mömmu!!
En lömbin mín... ég ætla að skella mér fyrir framan Liverpool TV og horfa á varaliðið vonandi vinna eitthvað, þeir eru klárlega það eina sem ég nenni að horfa á á þessari stöð, enda þeir einu sem geta eitthvað þarna... ég er ekki sáttur púllari þessa dagana.
Heyrumst! :)
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
15.4.2010 | 10:06
Rólegir tímar.
Jæja, núna er ég búin að vera að kíkja á sjónvarpið annað slagið síðan kl 8 í morgun, og bæði BBC og Sky news eru búin að vera að tala um elsku Ísland allann tímann. Dásamlegt. 90% af öllu flugi í Bretlandi hefur verið frestað, svekkjandi.
Flottar myndir af gosinu, en ég veit ekki alveg með þessa Íslendinga sem þeir hafa verið að tala við, þeir stama bara og vita ekkert hvað þeir eru að segja. Tala bara um bændurna og dýrin og bretarnir skilja ekkert, þeir eru bara að hugsa um samgöngurnar. Ótrúlegt lið, aumingja bændurnir.
Eins mikið og mig langar ekkert að vera á Íslandi á meðan fólk vælir út af skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis, þá langar mig að fylgjast með þessu betur! Fólk veit ekki neitt hérna, þau eru bara hrædd um að komast ekki í helgarferð til Orlando.....
Aumingja Ísland, það er allt að klikka.
Annars átti ég rólega helgi, Andrea var að passa og við vorum bara að dúllast eitthvað. Reyna að spara pening og njóta góða veðursins. Fór svo með Ingu frænku í smá bíltúr á sunnudaginn, keyrðum niður til Chichester og sáum "sjóinn", settumst inn á pub með útsýni yfir vatn, sem er víst sjórinn en er samt ekkert eins og sjórinn. Mjög góður og rólegur dagur og rosalega gott veður.
Það er voðalega rólegur tími í gangi núna, ekkert sérstakt að gerast, en Berglind sys er að koma í heimsókn eftir viku!! Þ.e.a.s ef þetta gos fer að haga sér! Ég brjáálast ef hún kemst ekki.
Ég hef roosalega lítið að segja eitthvað, eins og ég segi.. rólegir dagar. Var að passa hjá nágrönnunum á þriðjudaginn sem var mjög notarlegt. Ekkert að því að fá borgað fyrir að horfa á sjónvarpið! Notaði svo bara peninginn sem ég fékk til að kaupa mér smá föt, en ekki hvað?? ;)
Ég nenni voða litlu þessa dagana, er í einhverri lægð, haha. Leiðist samt alls ekki, er bara löt! Rétt drullast út að hlaupa en er svo bara að éta og slappa af. Sem betur fer þá hreyfi ég mig helling hérna, markmiðið var allavega að fitna ekki, og það er ekki að klikka, sem er gott. Annars borða ég mjög hollt, ég elska matinn hérna. Það er allt til og allt svo gott! Er líka farin að drekka smá te eins og alvöru Breti! Er alltaf að kaupa te handa mömmu, finnst svo gaman að kaupa te. Þarf að fara að koma þessu heim til hennar!
Fer annars heim eftir minna en 6 vikur! Ótrúlegt, þarf að nota tímann vel :) Ætla líklega að skreppa til Manchester í maí, heimsækja Sonju sem er au pair þar. Mig hefur alltaf langað að koma þangað.
4 vikur í mömmu líka!! Jidúddamía.
Anyways, ætla bara að yfirgefa ykkur.. frekar leiðinlegt blogg!
Blogga eftir helgina, ætlum að hittast au pair stelpurnar á laugardaginn, er að passa á föstudagskvöldið... önnur frekar róleg helgi framundan :)
Ciao!
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
7.4.2010 | 22:15
ohh this has gotta be the good life..
Woke up in London yesterday
found myself in the city near piccadilly
don't really know how I got here.
Já ég hef heyrt að það sé kominn tími á blogg! Er það ekki bara?
Ég heimta þá fleiri komment hérna annars fer ég í verkfall. Kommentið bara "k", eins og ykkur sé nok sama, þá sé ég allavega hverjir eru að lesa ;)
En annars er ég farin að halda að tíminn líði eitthvað hraðar hérna úti en annarstaðar, þetta er bara rugl! Seinustu 2 vikur bara fóru út um gluggann sko.. skil þetta ekki enn.

Lilja kom um þar-seinustu helgi, með famelíunni og ég eyddi helginni í að sýna henni London og kenna henni að versla og djamma hérna ;). Við Andrea ákváðum einmitt þarna nokkrum dögum áður að nú væri nóg komið í því að leika við íslendinga hérna úti og ákváðum að gefa því séns að kynnast einhverjum skemmtilegum bretum til að djamma með. Sjáum sko ekki eftir því, enda nauðsynlegt að finna sér einhverja til að tala almennilega ensku við, því maður vill jú læra eitthvað af þessari dvöl hérna. Kynntumst 3 strákum sem eru héðan, búa í rosa flottri íbúð á fimmtu hæð hjá einni af aðal djammgötunum hérna, sem er bara mjög hentugt verð ég að segja! Rosalega fínir strákar sem bara alveg elska að gera grín af íslenskunni og læra um Ísland, þeir hafa reynd
ar komið þangað einu sinni, í júlí 2007 þegar það var hitamet á Íslandi, þannig að þeir actually halda ekki að við búum í snjóhúsum, sem er mjög hentugt einnig.
En við allavega tókum Lilju með í partý til þeirra og svo hélt ég bara á pokum fyrir Lilju restina af ferðinni því hún var dugleg að versla sem er bara mjööög gott.
Um leið og Lilja fór, þá kom Sonja til mín. Sem var bara yndislegast í heimi, vildi óska að hún væri ekki farin! Við náðum að gera helling en höfðum samt góðan tíma í það þannig að það var ekkert stress og ég bara naut þess að hafa hana hérna.
Við skelltum okkur svo til Arons yfir páskahelgina, það var mjög gott að komast aðeins útúr borginni og í sveitaloftið! Fórum á leik, kíktum til Birmingham og höfðum bara alveg rosalega gaman, spiluðum, borðuðum páskaegg og enduðum helgina á íslenskum lambahrygg hjá Jónu, yndislegt. Alltaf jafn gott að koma til þeirra :) Við Sonja skruppum svo til Reading á mánudaginn til að horfa á Reading - Coventry, fullar tilhlökkunar að sjá íslendingana spila. Svo var Aron bara sá eini sem var í byrjunarliði, Brynjar Björn kom reyndar inná en samt frekar svekkjandi, og úrslitin ennþá verra... en samt góð ferð og alltaf gaman að fara á leik ;)
Það eru rólegar tvær vikur framundan, eða ég allavega veit ekki betur. Mig reyndar langar að fara til Manchester, Liverpool og aftur til Coventry en ég veit hreinlega ekki hvernig ég á að fara að því! Berglind sys er að koma eftir 2 vikur og ég er að sprriiiiiinga úr tilhlökkun, vildi bara óska að snúllurnar mínar kæmu líka, en ég á líklegast eftir að gráta úr gleði þegar ég sé börnin mín fjögur í lok maí/byrjun júní :) það er ekki alveg klárt hvenær ég kem heim, Elín ég veit þú ert að lesa það er pressa á þér að vera dugleg að læra! haha. En ég kem vonandi heim í kringum 25 maí.. ég er svo stressuð eitthvað fyrir þessari heimför og það eru ennþá 7 vikur í hana. Þetta verða svo blendnar tilfinningar! Mér líður svo vel hérna og það er svoooo gaman! en það verður auðvitað gott að koma heim og knúsa alla en ég er nokkuð viss um að mig á eftir að langa út STRAX aftur.
Annars er bara rólegur miðvikudagur, er í hálfgerðu spennufalli eftir alla þessa gesti og það er bara búið að vera crazy að gera eitthvað. Kom heim í morgun og bara steinsofnaði aftur, tók til og hafði kósí, svo erum við Steinar bara búin að vera að horfa á meistaradeildina með popp og kók á meðan Danielle blótar fótboltanum, þetta er lífið sem ég þekki ;). Er búin að fylgjast kannski aðeins of mikið með Coca cola deildinni og er að detta útúr öllu öðru.. verð að fara að rífa mig upp hérna!
Ég sakna ykkar elskurnar, en ég hef það alveg rosalega gott :)
Væri til í að skreppa heim í 1 dag, knúsa alla, fá mömmumat, og fara í klippingu og litun til Guðrúnar Önnu og í plokkun og litun einhverstaðar en annars er ég góð, haha... er ég rugluð að þora ekki í klippingu hérna? jiminn.
Ætla að detta í gossip girl og svefn.
Bæ :*
When you're happy like a fool
Let it take you over
When everything is out
You gotta take it in
Ohh this has gotta be the good life, the good life.
Þessi texti er bara eitthvað svo góður.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
24.3.2010 | 11:44
baby baby
Next thing we're touchingYou look at me it's like you hit me with lightningAhhh
Þvílík pressa frá þjóðinni að fá blogg frá Þuru sinni! Ég hef bara ekki verið í neinu stuði fyrir blogg seinustu vikur. Búin að vera lasin núna hálfpartinn síðan á sunnudaginn og er b
ara rosalega ljót og leiðinleg eitthvað!
Annars er London bara best eins og alltaf! Ég elska þessa borg bara meira og meira með hverjum deginum! Það er allt eitthvað sv
o einfalt hérna og mér finnst ég bara virkilega vera að lifa lífinu. Í fyrsta lagi finnst mér alltaf vera helgi! og í öðru lagi þá hef ég bara alveg hellings tíma á virkum dögum fyrir sjálfa mig sem er svo gott. Ég fer út að hlaupa, í ræktina, heim í langa sturtu og næs, kíki uppá oxford street að brasa eða kíki í lunch með Andreu, bara svo ótrúlega næs! Ég er lika bara svo heppin með fjölskyldu, hef það rosalega gott hérna.
Um þarseinustu helgi tók ég alveg virkilega rólega helgi. Kíkti til Ingu Mary frænku og var hjá henni laugardag-sunnudag. Fórum á tónleika í the German school. Ég hugsa að ég hafi lækkað meðalaldurinn um nokkra tugi ára þarna en það var mjög gaman, alltaf kósí að vera hjá Ingu! Það er líka komið svo gott veður hérna, alltaf svona í kringum 10-15 gráður, í seinustu viku var sól alla vikuna. Núna er veðrið reyndar ekkert spes en það er líka alltí lagi því ég er lasin!

Kristó kom svo um helgina og það var roosalega gott að sjá hann :) við tókum alveg svakalega túrista helgi á þetta og ég sýndi honum allt sem er að sjá! Fór loksins í London eye, við völdum alveg fullkomna tímasetningu held ég, fórum svona í ljósaskiptunum, þannig að þegar við vorum að fara upp var ennþ
á frekar bjart og við sáum allt, en svo þegar við fórum niður þá var orðið dimmt og öll ljósin og VÁ hvað það var fallegt!! Við fórum svo líka á vaxmyndasafnið sem var rosalega flott, hefði bara viljað hafa meiri tíma þar inni, vorum frekar mikið að drýfa okkur í gegn! En við versluðum líka helling, sem var frekar kærkomið en maður er að verða svona semi fátækur hérna samt ;). Ég hélt reyndar að Kristó kæmist ekkert heim, fyrst kom eldgos og svo ákváðu fávita flugvirkjarnir að fara í verkfall. Það hefði svosum alveg verið í meira en góðu lagi ef Kristó hefði verið hérna lengur, en auðvitað þurfi verkfallið að taka enda rétt áður en flugið hans var! Er samt ekki alveg að ná upp í þetta verkfall, veit ekki hvað þessir menn eru að kvarta, og svo völdu þeir alveg bara besta tíma aldarinnar í þetta verkfall. En ekki ORÐ um það meir! Æðisleg helgi, hún hefði alveg mátt vera lengri :)
Ég var að missa mig úr pirringi í morgun! Var að fara með krakkana í skólann og lestarstöðin þar sem ég fer út var lokuð, og þar er nú yfirleitt stappað á morgnana af fólki í jakkafötum eða háhæluðum skóm, en þetta var ekkert eðlileg geðveiki! Við fórum nú bara út á miðri leið og biðum eftir að stöðin opnaði aftur, sem var ekkert mál, Kristján vill nú yfirleitt fara út allstaðar á leiðinni þannig að hann var bara glaður með þetta ;) en það var semsagt lokað útaf því að brunavarnarkerfið fór í gang og þá er auðvitað slökkt á öllu og þ.á.m. rúllustigunum. Þessir rúllustigar eru ekki langir og ég hleyp nú yfirleitt alltaf upp þá þegar ég er ekki með 2 börn og kerru! Afhverju í óskupunum getur fólk á miðjum aldri, með 2 lappir og enga tösku og hvað þá kerru, ekki LABBAÐ upp rúllustigann? neinei.. TROOÐUM okkur öll í lyftuna, þannig að það var röð í lyftuna af fólki sem getur alveg labbað, og rúllustiginn við hliðina á! Það tekur miklu lengri tíma?? Eins og fólk er nú yfirleitt rosalega næs hérna þá get ég ekki skilið letina í fólki stundum! Man þegar maður var á vistinni og fólk var að taka lyftuna uppá 4 hæð kannski! afhverju í óskupunum ekki að labba? Vitiði hvað maður fær hot stinna fætur á því að labba upp þessa stiga?? jiii.

Ég og Andrea erum alveg að missa okkur í að skipuleggja tímann sem er eftir hérna! Því ég fer heim eftir rúma 2 mánuði, og 2 mánuðir hér eru sko OF fljótir að líða! þarf að skipuleggja mjög vel!
Lilja er að koma á laugardaginn, verður gaman að hitta hana og taka gott djamm og virkilega góðan verslunarleiðangur ;)
Sonja er að koma eftir viku, það verður svooo gaman að fá hana! Ætlum að fara til Arons til Coventry yfir páskahelgina og njóta hennar í faðmi frábærra íslendinga! Andrea kemur með og Atli Páll kemur líka svo það verður bara stuð sko. Berglind sys er svo að koma eftir mánuð og ég get ekki mögulega beðið eftir henni!! Sakna hennar alveg rosalega mikið! Finnst eins og ég hafi verið að segja í gær bara, vá það er strax kominn mars! neinei, það er 24 mars gott fólk!
Maí er svo bara mjög pakkaður, mamma kemur um miðjan maí, get varla beðið eftir því reyndar, litla mömmustelpan verður mjög kát þá, vildi bara að pabbi kæmi líka!
Við erum líka aðeins að gæla við þá hugmynd að fara á Rihönnu tónleika í Liverpool í maí, mig langar það rosalega mikið en svo eru Kings of Leon hérna 30.júní! Ég verð reyndar farin heim en guuð hvað mig langar að koma aftur í nokkra daga og fara á tónleika! Get ekki ákveðið hvort ég tími því, langar líka að kíkja til Berglindar og co til Noregs! Svo er auðvitað afmæli aldarinnar í Sjallanum 4. júní og ég ætla að vera komin heim fyrir það, reikna með að koma heim kannski bara 2-3 júní, það á bara eftir að ræða það aðeins betur :)
Veit það strax að það verða virkilega blendnar tilfinningar að fara heim!
Svo tekur bara Hofsá við aftur og eitthvað skemmtilegt í haust, Noregur í vonandi 2-3 vikur ef systir mín mun þola mig svo lengi ;) og eitthvað fleira skemmilegt! Hver þarf að drýfa sig svo mikið í lífinu að hann fer í háskóla bara til að læra EITTHVAÐ? Ég sé ekki tilganginn í því. Ég hef ekki ennþá hugmynd um hvað ég vil læra, jújú háskólaeiningar eru alltaf einingar og háskólagráða alltaf gráða en vá, er það í alvöru það eina sem lífið snýst um í dag? Það er svo margt skemmtilegt að sjá og gera! Á meðan maður hefur eitthvað annað að gera en vera í skóla og á pening til að gera eitthvað skemmtilegt, þá er ég nokkuð viss um að ég eigi frekar eftir að hugsa þegar ég verð 67 ára "Vá hvað það var gaman að leika sér þegar maður var tvítugur" heldur en "vá afhverju vann ég ekki við þetta í 2 ár í viðbót!!".
Annars er ég bar virkilega að njóta lífsins, sakna ykkar nú svolítið, er farin að þrá gott djamm með stelpunum mínum á Egilsstöðum t.d., hinar stelpurnar eru nú útum allan heim líka að njóta lífsins! Nema nokkrar skólastúlkur sem ég veit að öfunda okkur hinar bara smá pínupons ;) en langar annars ekkert rosalega mikið heim nema kannski þá til að knúsa alla og anda að mér frísku lofti í Vopnafirði.
Love you guys.
.
..So we burst into colors, colors and carousels,
Fall head first like paper planes in playground games.

Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
10.3.2010 | 23:38
Prague.
Hæ elsku fólk!
Jæja þá er maður kominn aftur til London eftir sérdeilis skrautlega helgi í Tékklandi! Prag er ofsalega falleg borg með rosalega flottum byggingum sem maður gat alveg starað á af hrifningu. Það er örugglega frábært að koma þarna á sumrin því það er svo mikill gróður og fallegt, við fengum reyndar ekki beint sumar veður en jæja. Maturinn þarna er líka mjög góður, eða allavega það sem við smökkuðum og næturlífið heldur betur fjörugt með spúandi eld sýningum á barnum og fleira, mjög flott! Verð nú samt að segja að ég hef ekki mikinn áhuga á því að fara þangað aftur, algjörlega once in a lifetime city to visit.
Við Andrea lögðum af stað aðfaranótt fimmtudags, eftir um það bil hálftíma svefn. Við gátum náttúrulega eins og okkur einum er lagið ekki farið snemma að sofa og hætt að tala! Ferðin út gekk furðu vel og við vorum ekkert svo þreyttar þrátt fyrir háltíma svefn! Ég hefði ekki getað valið betri sæti í flugvélinni því við lentum við hliðina á strák sem var fullur og algjörlega að misskilja lífið. Hann sagði okkur að hann ferðaðist um heiminn til þess að verða fullur og high í mismunandi löndum, ég vissi ekki alveg hvað ég átti að segja en Andrea náði að hrauna ágætlega yfir þessi lífsplön hans, hann var um það bil að gera mig geðveika með Jack Daniels í kók klukkan hálf 7 am á fimmtudegi. Við lentum í Prag kl hálf 10 á staðartíma, komum okkur upp á hótel þar sem án efa kurteisasti og besti maður ferðarinnar tók á móti okkur, hann var mjög ánægður með að fá Íslendinga á hótelið, hafði aldrei hitt íslendinga, það var reyndar frekar fyndið að þegar hann var ný búinn að segja það þá sá hann að það var einhver Katrín Ólafsdóttir að koma inn á hótelið sama dag, en hún var svo reyndar Færeysk þannig að þetta er ekkert góð saga! allavega, honum fannst við líta út fyrir að þurfa stærra herbergi en við höfðum pantað svo við fengum bara eitt stykki íbúð, þá stærstu á hótelinu, á efstu hæð og bara mjög fínt, svo lét hann okkur fá netið frítt þarna fyrsta daginn og við héldum að Prag búar væru bara þeir yndislegustu í heimi..... ehh einmitt.
Við náðum að skoða okkur helling um fyrsta daginn, löbbuðum bara eitthvert og vorum alltí einu komnar niður í bæ og búnar að sjá 4 og 6 byggingum sem við æltuðum að sjá, hefðum alveg getað farið heim um kvöldið bara! Nei djók, alls ekki. Við vorum eiginlega hálf smeikar þarna eftir myrkur þannig að fyrstu 2 dagana héldum við okkur bara inni á hóteli á kvöldin í kósý, held stundum að við Andrea séum OF skynsamar saman. Allavega alveg á hreinu að foreldrar okkar þurfa ekki að hafa áhyggjur af okkur! Við fórum reyndar út að borða á fimmtudeginum á ítalskan pizzastað sem var neðar í götunni, Andrea eignaðist aðdáanda þar sem laumaði til hennar miða sem á stóð "please take me your number", segir kannski allt um það hvernig fólk talar þarna úti, þetta eru sko krakkarnir á okkar aldri sem tala svona "góða" ensku. Mér finnst eiginlega bara ótrúlegt að fólk í störfum sem krefjast einhverra samskiptahæfileika, geti ekki einu sinni reddað sér í ensku! Taxa og strætóbílstjórnarnir, öryggisverðir og fleiri, skildu bara ekki BOBBS! Þetta gat alveg farið endalaust í taugarnar á mér, fólkið þarna var bara alveg ótrúlega spes, ótrúlega ókurteist bara verð ég að segja.
Á föstudaginn náðum við að skoða alveg helling en það var svo ótrúlega kalt, það er svo mikill raki í loftinu þarna og það var við frostmark, held mér hafi aldrei verið svona kalt. Við stukkum inn í Starbucks í hvert einasta skipti sem við sáum það til að hlýja okkur.
Á laugardaginn vöknuðum við og það var snjóhríð og allt hvítt, breyttist fljótt í slabb og ógeð og við vorum ekki alveg að nenna því, fórum og hittum Elvu loksins og kíktum í eitthvað mall þarna, verslaði nú lítið sem betur fer, nóg að versla í London ;). Á leiðinni niður í bæ ákváðum við að stoppa í hraðbanka, á undan okkur var mjög illa lyktandi og tannlaus maður sem okkur leyst ekkert á, hann að sjálfsögðu beið í sjónfæri eftir að Andrea fengi peningana sína og kom sko askvaðandi og sagðist eiga þessa peninga, alveg brjálaður og við það að lemja okkur, þetta endaði með því að við hlupum burt! Ótrúleg fátækt þarna, mér fannst það alveg rosalega áberandi. Við fórum svo út að borða um kvöldið með Elvu og Viggó á alveg frábæran stað, það var rosa gott og svo kíktum við aðeins á lífið, mjög fjörugt verð ég að segja! Þetta var frábært kvöld þangað til í taxanum heim þegar við föttuðum að myndavélinni hennar Andreu hafði verið stolið með öllum myndunum úr ferðinni :( alveg ömurlegt, vorum búnar að taka um 200 rosalega flottar myndir og vorum bara með eina myndavél. Vorum ekkert smá svekktar.
Á sunnudaginn vöknuðum við alveg engan veginn hressar, ennþá hundfúlar yfir myndavélinni og fannst eiginlega allt ónýtt þegar við vorum ekki með neinar myndir úr ferðinni! Við ákváðum samt að fara út og hitta Elvu aftur í mallinu, fá okkur starbucks til að bjarga deginum, held að það hefði bara ekkert getað það, haha. Þegar við komum á lestarstöðina löbbuðum við bara niður i lest eins og við höfðum alltaf gert, keyptum bara miða í lestina fyrsta daginn, af konu sem skildi ekki bobbs i ensku og seldi okkur greinilega ekki 4 daga miða heldur bara 75 klst miða. Bara svona því að þetta var alveg dagurINN okkar þá þurftu öryggisverðirnir endilega að vera þarna að tjekka á miðunum, þeir náttúrulega skildu heldur ekki bobbs í ensku og við gátum engan vegin talað okkur útúr því að borga 10.000 kr sekt! 5000 kr á mann. Alveg ótrúlegt, við máttum ekki bara snúa við og kaupa okkur miða, heldur þurfum við bara að borga á staðnum eða bara skella okkur í fangelsi í Tékklandi! Ég var ekki með mikinn pening inni á kortinu mínu og þurfti því að hringja í pabba og biðja hann um að redda mér, ég hefði alveg eins getað hringt bara úr fangelsinu til að biðja hann um að beila mig út, mér leið þannig! Þvílík vitleysa, og maðurinn skildi ekki neitt. Við fengum frábæra þjónustu á þessu hóteli samt og þeir pöntuðu fyrir okkur taxa sem keyrði okkur út á flugvöll, bílstjórinn babblaði að sjálfsögðu eitthvað allann tímann á tékknesku, við andrea sögðum bara til skiptis "Jájá, EINMITT" og "Já okey flott hjá þér" , skildum ekki rassgat. Skildum jú á endanum þegar hann sýndi okkur 1 & 2 með puttunum að hann gæti mögulega verið að spurja í hvaða terminali við værum, við svöruðum honum að sjálfsögðu með frábæru táknmáli. Ég endaði svo ferðina með því að þurfa að henda afmælisgjöfinni hennar heiðrúnar í ruslið á flugvellinum því ég mátti ekki taka hana með í handfarangur, en mátti samt endilega borga 5000 kr fyrir að tjékka töskuna mína inn. Nei takk. 500 ml af Vicorias secret body sprayi í ruslið, takk fyrir. Svo að sjálfsögðu var klukkutíma seinkun á fluginu, þurfum að bíða í hálftíma eftir lest og ca 10 min eftir báðum strætóunum, bara svona því að þetta var jú okkar dagur!
Vorum komnar heim kl 3 um nóttina og ég hugsa að ég hafi sjaldan upplifað jafn mikla "AHHHHHHH" tilfinningu, svaf vel í þessa 4 tíma sem ég fékk að sofa og var bara mjög þakklát fyrir þá. Verð að segja að London hefur aldrei verið mér eins mikið "home" eins og eftir þetta. Ég gjörsamlega elska þessa borg! Er hjá frábærri fjölskyldu, í æðislegri borg, veðrið er alltaf að verða betra og betra, ég er með æðislega vinkonu mér við hlið og þetta er bara frábært. Væri bara til í að koma bráðum heim í eina nótt til að knúsa alla og fara svo aftur, sakna margra mjög mjög mikið en það er bara svo rosalega gaman að vera í London, elska þessa borg bara svo mikið meira núna eitthvað, elska allt hérna. Love it.
Ég á líka alveg æðislega vinkonu sem mér finnst ótrúlegt að sé ekki búin að berja mig miðað við pirringinn seinustu daga, við eigum greinilega algjörlega skap saman, elska hana mjög mikið.
Miss you guys.
Bæjó.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
2.3.2010 | 13:28
tíminn líður...
Hæ,
Kominn þriðjudagur og ekkert blogg? hvað er að gerast? Seinasta vika var mun rólegri en sú fyrsta, byrjaði svona almennilega að gera það sem ég á að vera að gera. Ég var samt ekki byrjuð í ræktinni eða skólanum eða neitt þannig að það var svona minna að gera á meðan krakkarnir voru í skólanum. Ég var reyndar með litlu allan miðvikudaginn, því hún var enn bara í aðlögun á leikskólanum. Það var nú bara gaman:) Ótrúlegt hvað helgarnar líða hratt hérna (reyndar bara tíminn yfir höfuð!) Fór strax til Andreu á föstudaginn, eftir enn eitt pizzukvöldið hér á heimilinu, það er rosa gaman að fá nágranna eða vini þeirra í pizzu og kynnast nýju fólki! En allavega við Andrea ætluðum bara snemma að sofa og rólegheit en að sjálfsögðu náðum við að spjalla til ca 4, ekki beint snemma að sofa.
Við horfðum á Ungfrú Reykjavík. Flott keppni, flottar stelpur, en ég er nú samt alveg sammála umræðunni um La Senza atriðið að mörgu leiti. Eftir að hafa horft á þetta myndband á youtube daginn áður þá vissi ég ekki alveg hvað ég átti að halda. Rosalega vel gert myndband og mjög flottar stelpur, því verður ekki neitað! En ég veit ekki hvort þetta eigi heima í þessari keppni. Keppnin hefur reyndar verið að breytast mjög mikið seinustu ár, veit eiginlega ekki hvert þetta er að fara... mér hefði allavega ekki verið sama. Flott nærföt, flottar stelpur, en á þetta heima þarna? Ég veit það ekki. Við horfðum líka á Audda og Sveppa, tókum smá íslenskt á þetta. Flottur þáttur, hló endalaust þegar þeir voru að gera símaatið í Dwight York, Kristrún fær sko mörg stig frá mér fyrir að hafa skutlað sér í snjóskaflinn á bikiníi! Ég fékk bara sting í hjartað og gæsahúð! haha, kuldaskræfan. Sveppi var eins og lítill krakki hann iðaði allur við hliðina á henni, of fyndið.
Á laugardaginn sváfum við út og skelltum okkur svo aðeins niður á Oxford Street, aðallega bara að skoða og fá okkur kaffi. Náðum í Sonju elsku sem kom til að eyða restinni af helginni með okkur. Við ætluðum svo bara að fara í pizzu til strákanna og fara svo í bíó og hafa það gott, hefðum kannski betur haldið okkur við það plan, það var ekkert eðlilega mikil rigning! Ákváðum hinsvegar að sleppa bíóinu og kíkja aðeins út. Fórum í rigningunni á O'neils, þar var troðið eins og alltaf, dönsuðum eins og vitleysingar ásamt fleirum Íslendingum og svo kynntumst við 3 strákum frá Ástralíu sem sögðust aldrei hafa skemmt sér svona vel, Íslendingar væri skemmtilegasta fólk í heimi. Staðurinn lokaði svo klukkan 2, kíktum þá inn á annan stað. Ég varð nú bara pirruð um leið og við löbbuðum þangað inn, hef bara aldrei heyrt jafn leiðinlega tónlist inni á skemmtistað! En við fórum fljótt heim, biðum reyndar eftir strætó í hálftíma í rigningu og kulda. Aldrei verið jafn hamingjusöm.
á sunnudaginn ákváðum við að skella okkur í Íslendingamessu! kaffi og kökur í boði eftir messuna og gaman að hitta fólk þar. Inga Mary frænka kom og hitti mig, það var mjög gaman að sjá hana! fórum svo í smá túristaleiðangur með Sonju, þar sem hún fær ekkert mikið að sjá þar sem hún býr 40 min frá London! Borðuðum frábæran mat á Fridays,mm. Úrslitaleikurinn á ólympíuleikunum í Hokký var svo um kvöldin, ég bý að sjálfsögðu með hálf kanadískri fjölskyldu svo það var mjög mikil gleði hér! dásamlegt.
Það er búið að vera sól hérna í 2 daga núna, var um 10 stiga hiti í gær en aðeins kaldara núna, en samt svo gott að þurfa ekki að vera í rigningunni! Mætti einmitt randaflugu á leiðinni úr ræktinni í gær, mér var nú ekkert sama. Var bara að labba á peysunni og á tánum í skónum, þegar sólin skýn á mann þá er bara heitt sko. Í morgun var þvílík gleði á lestarstöðinni, undergroundin var lokuð. Þannig að við þurftum að taka strætó og svo ferju yfir ánna, getið ímyndað ykkur traffíkina á svæðinu. Var 2 tíma að fara með krakkana í skólann. Sem betur fer er Danielle ekki alveg byrjuð að vinna þannig að hún gat komin með og sýnt mér leiðina. Þetta er samt miklu skemmtilegri ferðamáti, vera ekki neðanjarðar og sjá alltaf út, en tekur lengri tíma og ennþá meira labb. það er samt búið að opna aftur núna, thank god.
ÉG ER AÐ FARA TIL PRAG á fimmtudaginn þannig að það kemur bara blogg eftir þá ferð! við Andrea erum svo að fara að hafa það gott.
Bæ í bili.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
22.2.2010 | 14:39
Vika nr. 1.
Góðan daginn frú mín góð sko!
Ég hef svo margt að segja! Ég held að ég bloggi framvegis á sunnudögum eða mánudögum, þá er vikan búin að ég hef örugglega mest að segja.
Ég er strax búin að vera hérna í viku, þetta er farið að líða skuggalega hratt. Fyrstu dagarnir voru óvenju lengi að líða, en ég áttaði mig á því fljótt að það var útaf því að ég hef ekki verið vakandi frá 08.00 í marga mánuði!! bara einhverja örfáa daga, dagurinn lengdist um 3 klukkutíma, en ég hafði nú bara gott af því. Hitt var líka orðið frekar þreytt, þessi helgar, nætur og eftir hádegi vinna.
Seinasta vika fór aðallega í að læra að rata, læra rútínuna og kynnast krökkunum, koma mér fyrir og hjálpa þeim að koma sér fyrir. Gæti örugglega ekki talið kílómetrana sem við erum búnar að labba seinustu daga, en ég hafði virkilega gott af því, og Danielle er mjög dugleg að segja mér frá öllu, afhverju þetta er svona og svona, sem er mjög gaman, gæti orðið guide um London seinna bara ;-).Á þriðjudaginn fór ég á kóræfingu, með íslendingaakórnum. Hún var í sænku kirkjunni sem er mjög flott, rosa góður hljómur þarna inni, væri alveg til í að spila á þverflautuna þarna, enda sagði ég kórstjórnandanum frá því! Veit reyndar ekki hversu mikið ég get verið með í þessum kór, því að æfingarnar eru klukkan 7, og ég alltaf búin um 6-7, tekur slatta tíma að komast þangað, en það verður bara að ráðast. Helgin var mjög skemmtileg, á föstudaginn var pizza partý með nágrönnunum, mjög gaman, þeim fannst mjög áhugavert að margir íslendingar héldu svona pizzakvöld, baka pizzur með krökkunum, það eru mjög margar fjölskyldur sem gera það, sérstaklega á föstudögum! Við Andrea kíktum svo í keilu með Andra og Sigtryggi, sem eru 2 íslenskir strákar sem eiga pizza stað hérna í London (SVAKA góðar pizzur!!), ég ætla ekkert að ræða það hvernig það fór.. segum bara að ef þetta hefði verið stelpur á móti strákum þá hefðum við unnið!! (andrea var eins og atvinnumaður!). Við misstum okkur svo aðeins í fótboltaspili, svona eins og var í Grunnskólanum heima alltaf, það var kannski aðeins of mikið fjör! við gátum ekki hætt og okkur var næstum því hent út! Samt alveg greinilegt að það voru fótboltaspil en ekki keiluhöll á Vopnafirði!! Rúst! Ég gisti svo í ulllarpeysu heima hjá Andreu á föstudaginn, þvílíkur kuldi heima hjá henni!
Á laugardaginn vöknuðum við svo við sólina og dryfum okkur út, ég svaf nú ekkert mikið þessa nótt því að sumir voru með kvef og létu það bitna á hljóðhimnunni minni, hehe. Fórum á Oxford street og náðum að versla smá og fá okkur starbucks kaffi, ætluðum svo að fara á Crystal Palace - coventry sem byrjaði klukkan 15.00. Við vissum ekki alveg hvar þetta var eða hvernig við kæmumst þangað en héldum samt að það tæki ekkert mikið meira en klukkutíma! þannig að við lögðum af stað klukkan tvö. Þegar við komum á lestarstöðina vorum við bara ekki að finna réttu lestina, höfðum ekki hugmynd um hvert við vorum að fara, sáum svo loksins einhverja lest sem hét eitthhvað via "crystal palace", við rétt náðum að stökkva þangað inn (Hurðin lokaðist 1 sek efir að við komum inn!!), höfðum í rauninni ekki hugmynd um hvort við værum í réttri lest! komumst þá að því að lestarnar fara þarna niðureftir á hálftímafresti! FREKAR HEPPNAR. Jæja, við vorum lengur á leiðinni en við héldum og þegar við komum útúr lestinni þá höfðum við ekki hugmynd um hvar í heiminum við vorum! Vorum að spá í að stoppa einhvern úti á götu og spurja hvar við værum eiginlega en ákváðum að sleppa því! Fundum einhvern strætó sem fór á stoppistöð sem hét það sama og leikvangurinn, héldum að við værum þokkalega safe. Neinei, þegar við komum þangað út þá var bara endalaus gata og enginn leikvangur sjáanlegur, leikurinn var nýbyrjaður og við bjuggumst bara við því að renna á lætin, en ekkert heyrðist. Við byrjuðum að labba, ákváðum svo að spurja einvern mann til vegnar, hann sagði okkur að við værum að labba í akkúrat vitlausa átt, en hann væri að fara sömu leið svo við ættum bara að elta hann (Heppnar, aftur). Við löbbuðum örugglega korter og þegar við loksins komum að leikvanginum var alveg að koma hálfleikur, og við áttum eftir að sækja miðana okkar! Okkur leið stundum eins og fólk þarna hefði aldrei héð ljóshærðar bláeygðar stelpur labba saman áður, svo það voru allir tilbúnir til að hjálpa okkur. Það var einmitt öryggisvörður sem var alveg til í það, sagði okkur að við þyrftum að labba með hinum að hinum endanum á leikvanginum til að fá miða, og við eltum. Hélt að aumingja maðurinn væri að gefast upp að labba þetta, enda var hann alls ekki 20 kg með skólatösku. Þegar við komum á "réttan stað" sagði konan í afgreiðlunni við okkur, "já þetta eru þá 25 pund hvor". Ég hélt ég yrði ekki eldri, ég bara, neinei, við erum með frímiða, ætlum ekki að borga krónu. "Já okey, sorry, þá þurfiði að labba ALLA LEIÐ TIL BAKA, til að fá miðana". við gerðum það, og það er hætt að hleypa inn í hálfleik, svo að við þurftum að fara inn bakdyrameginn einhverstaðar "bara því þið eruð svo sætar". Okkur til mikillar gleði þá gerðist ekkert í fyrrihálfleik svo við misstum ekki af neinu! Aron spilaði líka allan leikinn svo við misstum ekki af honum! Coventry skoraði eitt mark í seinni hálfleik og þeir unnu 1-0! Talandi um lukkudýr sko. Það var orðið virkilega kalt þarna og við ákvaðum að drýfa okkur til baka, komum við hjá Andra og Sigtryggi og fengum heimsins bestu pizzur, svo ætluðum við heim til mín en AUÐVITAÐ var lestarlínan heim til mín lokuð. Við þurftum því að redda okkur með strætó og eitthvað sem gekk svosum vel en við vorum komnar heim seinna en við ætluðum, ákváðum líka bara að kaupa nammi og horfa bara á gossip girl, nenntum enganveginn út aftur. Það varð reyndar ekkert úr nammiátinu því við misstum alla matarlyst á leiðinni heim þegar Andrea steig í ælu og við sáum mann æla úr sér lungun næstum því á lestarstöðinni. Virkilega gott að fara að sofa þetta kvöld engu að síður.
Í gær var svo frekar rólegur dagur, við fórum aftur niður á Oxford street og hittum Sonju sem er au pair hérna rétt hjá London. Kíktum svo í bíó á Valentine's Day, verð að segja að eg hélt hún væri betri, en samt mjög fín og auðvitað frábærir leikarar. Á leiðinni heim úr bíó ákváðum við Andrea að gleyma að fara útúr strætó (því lestar línan var ennþá lokuð), það voru einhverjir hommar við hliðina á okkur í strætónum sem voru svo endalaust sætir og krúttlegir og hlóu allan timan og voru alltaf að afsaka sig, við hlóum svo mikið að við gleymdum að fara út. þannig að við þurftum að fara aftur til baka og tókum vitlausan strætó!! þetta var alveg helgIN OKKAR. Við allavega lærum af þessu, verður sko ekkert mál að fara aftur til Crystal palace (sem ég sé ekki fram á að við gerum! haha), og að taka strætó heim.
Ég er löngu búin að læra by heart að vera hægra megin í rúllustigunum. Það sem ég er að reyna að læra núna er að líta í rétta átt þegar ég fer yfir götu! Er ekki að ná að venjast þessari vinstri menningu! Finnst við alltaf vera að keyra á þegar ég er í strætó, er alltaf næstum því búin að öskra! Frekar vandræðalegt. Talandi um vandræðalegt, við Danielle fórum út að borða á kínverskan veitingarstað á þriðjudaginn minnir mig. Ég þurfti svo að skreppa í búð og Danielle pantaði fyrir okkur á meðan. hún hafði náttúrulega ekki hugmynd um hvort ég væri fyrir sterkan mat eða ekki, þannig a hún ákvað bara að panta medium, auðvitað. Ég hinsvegar, en og flestir sem þekkja mig vita, er með ÓNÝTA bragðlauka.. ég get ekki mögulega borðað sterkt þá bara kveiknar í mér!! þetta var alveg frekar vandræðalegt, því ég gat ómögulega borðað meira en 3 bita af núðlunum mínum. Þurfti á endanum að skipta um mat við Danielle, haha. Hún kallar mig bara spice girl núna, frekar fyndið. Ég verð kannski orðin betri þegar ég kem heim ;)
Þessi borg er samt svo fyndin, eins og hún er stór og merkileg og flott, þá líður mér stundum eins og ég sé komin mörg ár aftur í tímann. Ég fór t.d. á heilsugæslustöðina hérna í hverfinu um daginn og jesús minn. Ég hefði ekkert endilega verið til í að fara til læknis þarna! Allt eld gamalt og leit svona hálf subbulega út, allt handskrifað á veggjunum, auglýsingar og svona. Frekar fyndið, en læknarnir þarna eru víst mjög góðir, sem skiptir aðvitað öllu máli! Það er svo mikið af flottum byggingum hérna og endalaust að skoða! Held það sé ekki hægt að láta sér leiðast, sérstaklega þegar veðrið er orðin betra. Það er t.d. alveg glatað veður i dag, rigning og slydda til skiptis. Ennþá frekar kalt, hlakka mjög mikið til að geta farið út á peysunni. Við Andrea erum svo fara til Prag eftir eina og hálfa viku! Það verður endalaust gaman að skoða, og hitta Elvu líka. Ég hlakka mjög mikið til! Þetta er svona fyrsti rólegi dagurinn minn, fór bara með Kristján í leikskólann í morgun og sæki hann á eftir, Danielle er heima, ógeðslegt veður og við nennum engu. Ætla að skoða enskuskólann og reyna að finna ágæta rækt hérna nálægt í vikunni. Það verður gott að hafa nóg að gera!
Ætla að gera eitthvað annað.. þetta er orðið OF langt.
Set flestar myndirnar á facebook, en ef það er einhver sem er ekki með FB og vill sjá myndir þá bara látiði vita.
Vil endilega fá komment frá öllum, gaman að sjá hverjir lesa.
Bæjó.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
15.2.2010 | 21:32
London baby,
Hæ lömbin mín, ég lofaði að vera dugleg að blogga hérna í Lundúnum og ég ætla líka að standa við það.
Ég kom hingað í gær, á valenínusardaginn, sem ég hef aldrei haldið uppá og ekki eru margir á Íslandi sem gera það. En það er eitthvað við það þegar maður flytur úr landi, manni finnst maður þurfa að gera ALLT áður en maður fer! Við Kristófer héldum smá uppá daginn 13.feb, bara svona því að ég var að fara daginn eftir, gistum á Hotel Plaza og kósí, flott hótel og ekki of dýrt. Fyndið samt, að mér fannst ég þurfa að gera alveg fáránlegustu hluti áður en ég fór sem ég hefði örugglega aldrei gert á þessum ca. 4 mánuðum. Tók með mér svo mikið nammi, ég hefði örugglega aldrei borðað allt þetta nammi heima! Fannst ég ÞURFA að taka með mér bolludagsbollur (gerði það nú samt ekki), en samt át ég þær föstudag, laugardag OG sunnudag, BARA afþví að ég var að fara, hahaha. Þetta er ekki eðlilegt. Ég var samt farin að hugsa “er ekki bara fínt að sleppa þessu í nokkra mánuði??”. Hélt líka örugglega að það væri bara ekki hægt að kaupa neitt hérna, því ég tók svo mikið af spes hlutum með mér. Keypti t.d. linsuvökva áður en ég fór, og svo þegar ég kom gaf Steinar mér 3 flöskur af vökva! Þannig að ég á loooads, ég hugsaði líka um að að kaupa auka shampoo áður en ég færi ef ég myndi ekki finna það í London! Eins og það er nú hægt að kaupa mikið hérna! En þetta er kannski bara gott, þetta er allt eitthvað sem klárast, og þá tók ég ekki meira af fötum með sem ég myndi ekkert nota. Tók reyndar 4 eða 5 pör af ullarsokkur, bara eins og ég sé að fara á norðurpólinn, það er reyndar kalt hérna en ekkert kaldara en heima samt!
Ferðin gekk mjög vel, kom út með fjölskyldunni sem ég bý hjá, sem var mjög þægilegt, þau voru sjálf að flytja út aftur eftir 7 mánuði á Íslandi. Viðurkenni alveg að það var mjög erfitt að kveðja, enda er ég hræðileg í að kveðja fólk og vil helst bara sleppa því! Finnst það oft næstum því betra.. nema svona eftirá kannski. En þetta leggst bara mjög vel í mig, fjölskyldan er alveg frábær. Gerir allt fyrir mig og ég er í æðislegu herbergi á efstu hæð í húsinu, alveg nauðsynlegt að hafa smá space fyrir sjálfan sig finnst mér, er með mitt eigið baðherbergi með sturtu og baði sem er æði, og stóran fataskáp, sjónvarp, gott net og fuuullt af bókum, allt bara frábært. Húsið er mjög kósí, mjög breskt en mjög nice með ÆÐISLEGU útsýni. Búum alveg við Thames ánna, og Tower Bridge er bara hérna fyrir utan gluggan, æðislegt á kvöldin þegar ljósin eru og allt (set inn mynd), svo er endalaust af bátum sem fara hérna framhjá, verður víst stundum stuð þegar partýbátarnir fara framhjá, brúðkaupsveislur eða eitthvað skemmtilegt, verður gaman að sjá!
Ég tók myndavélina mína með mér, hún er reyndar frekar leiðinleg við mig og svo tók ég vitlausa myndavélasnúru, fæ hina ekki fyrr en eftir mánuð! En ég hef alltaf iphone-inn og get tekið fínustu myndir á hann! Annars stel ég örugglega einhverju af Andreu ;-). Hún kom einmitt í gær og sagði hæ og það var yndi að hitta hana! Verður svo gaman hjá okkur, ætla að kíkja með henni á kóræfingu á morgun, haha, það verður bara gaman að hitta fólk og svona, frábært að hafa eina af bestu vinkonum sínum hérna, munar öllu þar sem ég sé frammá að helgarnar verði fullar af skemmtilegheitum!
Ég er vissulega með smá heimþrá, en ég fæ líka alltaf heimþrá þegar ég fer á nýja staði, meira að segja eftir jólafrí og allt, og það hverfur alltaf eftir nokkra daga. Er alveg viss um að ég verð orðin ágætis stórborgari eftir bara nokkra daga! Ég verð jafnvel kannski búin að læra það að standa hægra megin í rúllustiganum, áður en ég fer heim!! Eg ætla bara ekki að ná þessu, standa hægra megin, því fólk sem er að flýta sér labbar upp vinsta megin. LÆRA ÞURA. En þetta fer allt að smella hérna, maður verður bara að vera duglegur að vera úti og skoða sig um og svona, verður ljúft að kíkja í smá búðir og eitthvað með stelpunum um helgina! Verður líka gott þegar fjölskyldan verður komin í rútínu, þau voru auðvitað að flytja hingað aftur líka, nóg að gera og Danielle ekki byrjuð að vinna eftir fæðingarorlof en er að byrja í nýrri vinnu. Krakkarnir eru samt yyyndisleg, algjör yndi. Erum búin að vera að stússast eitthvað í dag bara, labba og labba og næsta lest og næsta lest, er með strengi í kálfunum!! Danielle að segja mér frá öllu og hvernig er best að gera þetta og hitt, sem er mjög gott. Þetta lestarkerfi er svo auðvelt, er með kort og ekkert mál að komast útum allt á ekkert svo löngum tíma, á meðan línurnar bila ekki eða loka þá er þetta svo easy. Mörgum sem finnst svona underground lestar subbulegar, en mér finnst þetta bara þægileg samgönguleið.
Ég held þetta verði rosa góð lífsreynsla, ætla að reyna að læra sem mest af henni, enda er þetta stuttur tími, verður ljúft að koma heim eftir skemmtilega dvöl og maður búinn að fá smá útrás fyrir ævintýraþránni, þá kannski nennir maður að setjast á skólabekk næstu árin, pjæ, því ekki ætla ég að sleppa því.
En jæja, ætla ekki að hafa þetta lengra í beli. Það er víst brjálað veður þarna á fróni, langar nú ekkert í það þó mér finnist það alltaf gott annað slagið. Ég vaknaði nú bara við fuglasöng í morgun, það var mjög gott, en það er samt kalt hérna. Það verður virkilega gott að fá vorið snemma í ár.Hafið það gott þarna heima, ég hef það bara fínt hérna og þetta á örugglega bara eftir að verða betra.
Sakna margra þvi ég elska marga.
Ykkar Þrúður.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
25.11.2009 | 21:12
Þegar líða fer að jólum...
Já jólin nálgjast svo sannalega ! Mánuður í jóladag... ótrúlega er tíminn fljótur að líða, eftir því sem maður verður eldri þá finnur maður meira fyrir þessu, ótrúlegt. Ég er alltaf að sjá það betur og betur hvað ég er mikið jólabarn. Ég er t.d. þessa dagana alveg að farast úr stressi því að ég kemst ekki heim fyrr en að morgni 21. des. Hef aldrei komið heim svona seint og ég veit ekki alveg hvað ég á að gera í þessu ! En þetta gerist víst þegar maður fer að eldast :(. Það bjargar því reyndar alveg að ég fæ að fara heim á sunnudaginn næsta (29.nóv), á fysta í aðventu, og verð heim í nokkra daga. Það er mjög langt síðan ég hef verið heima á þessum tíma. Fæ að skreyta og gera laufabrauð með famelíunni, og kannski næ ég að plata mömmu í að baka eina sort af jólakökum ;). Það verður ÆÐI ! Hlakka rosalega mikið til.
Annars er allt gott að frétta.. ég bloggaði aldrei eins og ég lofaði eftir Englands ferðina.. ekki eins og ég hafi haft eitthvað annað gera en ég bara nennti því ekki. Það var mjög gaman í Englandi, æði að hitta Andreu & Aron. Náði að versla eitthvað og sjá helling, og auðvitað knúsa Andreuna mína mjög mikið. Það eru 2 mánuðir í að ég flytji. Ekki laust við spenning og stress !! Þetta verður þvílíkt ævintýri og ég hlakka mikið til. Þetta er ekki langur tími og það er ekki langt til London ! (Þetta er hint á ykkur að koma í heimsókn).
Eins mikið og ég hef blótað því að hafa ekki sótt um skóla í haust.. þá er ég svooooo fegin núna. Allir að fara í próf og ég finn að ég er bara alls alls ekki í þeim gír. Verður bara roslaega gott að fara í skóla næsta haust, búin að hlaða batteríin og tilbúin í slaginn! Held það sé nauðsynlegt fyrir fólk að taka sér pásu og gera eitthvað skemmtilegt.. þó ég sé nú kannski ekki að gera neitt skemmtilegt núna, búin að vinna alltof lítið og hanga alltof mikið.. en líka ferðast og skemmta mér. Sem betur fer á ég alveg pening til þess að leyfa mér að leika mér bara.. þakklát fyrir það! Það verður mjög gott að fara út eftir áramót, prufa eitthvað nýtt og heyra eitthvað annað en krepputal allann daginn.
En nóg af einhverju leiðindatali...
Ég ætla að kaupa mér EMAMI kjól fyrir jólin! Mæli svo mikið með þessu, hægt að gera svo margt flott ef maður bara nennir að fikta, ég ætla að kaupa svartan og þá er hægt að nota hann í allt mögulegt.. meira að segja hægt að nota hann sem buxur, hversu góða fjárfesting er það ??
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)


andreakidda
